
Fræðsla um seiglu og sjálfstraust barna
Forvarnarteymi Borgarbyggðar býður foreldrum og öðrum áhugasömum til fræðslufundar um hvernig styrkja megi seiglu, þrautseigju og sjálfstraust barna. Fundurinn verður haldinn í Hjálmakletti í Borgarnesi mánudaginn 16. nóvember kl. 17–19. Fræðslan ber yfirskriftina Ólseigir krakkar – Að efla þolgæði og sjálfstraust barna og er einkum ætluð foreldrum barna á leik- og grunnskólaaldri. Fjallað verður um hvernig foreldrar geta hjálpað börnum að takast á við áskoranir, mistök og mótlæti, eflt sjálfstæði þeirra og innri hvata. Einnig verður rætt um áhrif hróss á sjálfstraust barna og leiðir til að byggja upp heilbrigðan sjálfsaga.