
Nemendur elsta stig Grunnskóla Snæfellsbæjar. Ljósmyndir: AF
Nýjar símareglur breyta engu fyrir nemendur í Snæfellbæ
Í tilefni þess að reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskólum og á frístundaheimilum tók gildi 1. september síðastliðinn efndi nemendaráð Grunnskóla Snæfellsbæjar til Nemendaþings í morgun. Tæplega hundrað nemendur úr 7.-10. bekk komu saman og ræddu ýmis mál í hópum. Reglugerð ráðuneytisins var borin saman við símareglur í GSnb sem hafa verið í gildi síðan 1. apríl 2022 og töldu nemendur ný lög ekki breyta miklu fyrir sig enda vanir því að vera án síma á skólatíma. Þess má geta að Grunnskóli Snæfellsbæjar var fyrsti skóli landsins til að banna farsíma á skólatíma.