Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj.

Fá gjafabréf í heimabyggð

Borgarbyggð hyggst færa rúmlega 350 starfsmönnum sínum gjafabréf að andvirði 15.000 króna í jólagjöf og leitar nú að verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem vilja taka þátt í verkefninu. Með þessu fyrirkomulagi er jafnframt stuðlað að aukinni verslun og viðskiptum innan sveitarfélagsins. Gjafabréfin verða afhent í byrjun desember og gilda frá 14. desember til 31. mars 2027. Þau má nota sem greiðslu eða upp í kaup á vöru eða þjónustu hjá fyrirtækjum sem skrá sig til þátttöku. Fyrirtækin fá andvirði bréfanna síðan endurgreitt frá Borgarbyggð gegn framvísun þeirra.