
Kosið verður í dreifbýlisráð sveitarfélagsins Stykkishólms laugardaginn 7. nóvember. Kjörfundur fer fram í Félagsheimilinu Skildi í Helgafellssveit og verður kjörstaður opinn frá klukkan 10 til 18. Kosningarrétt hafa íbúar á því svæði sem áður tilheyrði Helgafellssveit, samkvæmt sveitarfélagakorti Landmælinga Íslands frá 2014, auk íbúa í Ögri. Kjörgengir eru þeir sem eiga skráð lögheimili á svæðinu.…Lesa meira








