
Edit sest á þing
Edit Ómarsdóttir tók í gær sæti á Alþingi í fyrsta sinn og skrifaði undir drengskaparheit við stjórnarskrána. Hún er varaþingmaður Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi og kemur inn í forföllum Maríu Rutar Kristinsdóttur þingmanns. Edit er búsett á Akranesi og er tölvunarfræðingur með reynslu af rekstri, stjórnun og viðskiptaþróun í tæknigeiranum.