Hallgrímshátíð í Saurbæ verður um næstu helgi

Hallgrímshátíð hefst með tónleikum kl. 16.00 á laugardaginn. Sönghópurinn Cantores Islandiae undir stjórn Ágústar Inga Ágústssonar flytur fagra og sjaldheyrða tónlist tileinkuð Maríu Guðsmóður og ljóðum Hallgríms Péturssonar.  Flytjendahópurinn er óvenjulegur; sönghópur karlaradda, forn blásturshljóðfæri, mezzósópran og orgel. Aðgangur er ókeypis.

Á sunnudag verður hátíðarmessa kl. 14.00, síðan kirkjukaffi í boði sóknarnefndar í Sumarbúðum KFUM í Vatnaskógi og að lokum dagskrá í kirkjunni kl. 16.30 þar sem þess verður minnst að 360 ár eru liðin frá fyrstu útgáfu Passíusálmanna, en þeir voru prentaðir á Hólum í Hjaltadal árið 1666. Frú Agnes M. Sigurðardóttir predikar í messunni, prestar prestakallsins þjóna, Kór Saurbæjarprestakalls syngur og Benedikt Kristjánsson  og Ásta Marý Stfánsdóttir syngja einsöng. Organisti er Jóhanna Marín Óskardóttir.

Á dagskránni kl. 16.30 flytur sr. Kristján Valur Ingólfsson erindi um útgáfur Passíusálmanna og sýning verður á nokkrum útgáfum þeirra sem gefnar hafa verið til Hallgrímskirkju í Saurbæ.

Tónlistin er tileinkuð minningu Smára Ólasonar, (1946-2023), organista og kirkjutónlistarfræðings sem hefði orðið áttræður í ár. Smári safnaði, rannsakaði, skráði á nótur og útsetti hin „gömlu“ lög við Passíusálmana sem hljóðrituð voru víðs vegar um landið á síðustu öld. Ásta Marý Stefánsdóttir sópran og Guðmundur Sigurðsson organisti flytja sálmalög í útsetningu Smára og Guðmundur leikur orgelverk samin út frá stefjum sálmanna eftir Smára Ólason.

Allir eru hjartanlega velkomnir á Hallgrímshátíð í Saurbæ.

-fréttatilkynning

Sönghópurinn Cantores Islandiae syngur undir stjórn Ágústa Inga Ágústssonar.