Fréttir

true

Þórsarar of stór biti fyrir Skallagrímskonur – næsti leikur í kvöld

Skallagrímskonur máttu sætta sig við stórt tap gegn Þór frá Akureyri í 1. deild kvenna í körfuknattleik á sunnudaginn. Lokatölur í Borgarnesi urðu 56:108, en gestirnir höfðu yfirhöndina frá upphafi til enda. Þórsarar byrjuðu af miklum krafti og leiddu 30:15 eftir fyrsta leikhluta. Skallagrímskonur náðu að halda betur í við gestina í öðrum leikhluta, sem…Lesa meira

true

Kröpp lægð sem mun hafa áhrif víða

Á morgun er spáð að djúp haustlægð muni hafa áhrif víða um land. Gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi, en versta veðrinu er spáð á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra, þar sem viðvaranir eru appelsínugular. Gular viðvaranir fyrir Breiðafjörð og Faxaflóa taka gildi klukkan 9 í fyrramálið og gilda til miðnættis. Lægðin mun fyrst ganga…Lesa meira

true

Tónlistargleði og hlýjar stundir á Höfða

Það var sannkölluð tónlistarveisla á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi síðdegis í gær þegar eldri söngnemendur Tónlistarskóla Akraness heimsóttu heimilið og héldu tónleika fyrir íbúa. Salurinn var þétt setinn og undirtektir góðar. Ljóst var að tónlistin féll í góðan jarðveg og færði heimilisfólki ánægjulega tilbreytingu í daglegt líf. Slíkar heimsóknir eru dýrmætur þáttur í samfélaginu á…Lesa meira

true

Loðnumæling og ráðgjöf undir væntingum

Uppfærð veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og Náttúrustofnunar Grænlands (GINR) fyrir komandi loðnuvertíð er upp á ríflega 105 þúsund tonn. „Ráðgjöfin byggir á niðurstöðum bergmálsmælinga á loðnustofninum í september síðastliðnum sem reyndust töluvert undir væntingum. Vegna óhagstæðra aðstæðna nyrst á leiðangurssvæðinu náðist ekki yfir allt útbreiðslusvæði stofnsins og því má gera ráð fyrir að stærð hans sé vanmetin,“…Lesa meira

true

Vör valin besta farþegamiðstöðin í Evrópu

Vör, ný fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóahafna í Reykjavíkurhöfn, hefur hlotið World Cruise Awards sem besta farþegamiðstöð skemmtiferðaskipa í Evrópu árið 2026. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk höfn eða farþegamiðstöð hlýtur verðlaunin. Reykjavíkurhöfn var með farþegamiðstöðinni Vör ein fjórtán tilnefndra hafna í Evrópu og keppti við rótgrónar skemmtiferðaskipahafnir álfunnar í Barcelona, Civitavecchia við Róm, Amsterdam,…Lesa meira

true

Heitavatnslaust á nokkrum stöðum í Hvalfjarðarsveit í dag

Vegna viðgerða á hitaveitukerfi verður heitavatnslaust á nokkrum stöðum í Hvalfjarðarsveit í dag, þriðjudaginn 13. október, frá kl. 14 til 17. Samkvæmt tilkynningu frá Veitum nær lokunin til Lækjarmels, Bugðumels, Innrimels, Hagamels, Brekkumels, Lyngmels, Háamels, Lambaga og Stóra-Lambhaga. Veitur beina þeim tilmælum til íbúa að skrúfa fyrir alla heitavatnskrana til að koma í veg fyrir…Lesa meira

true

Af verkefnum lögreglu í vikunni

Í vikunni sem leið voru 46 ökumenn stöðvaðir og sektaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. 789 ökumenn að auki voru myndaðir af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Einn ökumaður var kærður fyrir að aka á móti rauðu ljósi, tveir kærðir fyrir notkun á farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur…Lesa meira

true

Opnaður hefur verið hjálparsími fyrir karla

Samtök um karlaathvarf hafa opnað hjálparsíma fyrir karla sem búa við ofbeldi eða standa höllum fæti gagnvart kerfinu. „Síminn er 792-1818 og öll samtöl eru trúnaðarmál. Til hjálparsímans geta karlar leitað ef þeir búa við líkamlegt, andlegt, fjárhagslegt eða kynferðislegt ofbeldi í nánu sambandi; ef þeir fá ekki að hitta börnin sín eða umgengni er…Lesa meira

true

Kynningarfundur um Uppbyggingarsjóð

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) standa fyrir opnum kynningarfundi um Uppbyggingarsjóð Vesturlands föstudaginn 16. október kl. 12–13. Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem hyggjast sækja um styrki til verkefna á Vesturlandi. Á fundinum verður farið yfir markmið sjóðsins, styrkjaflokka og úthlutunarreglur. Þá verður umsóknarferlið kynnt og veitt hagnýt ráð um hvernig standa megi að gerð…Lesa meira

true

Krakka Rökkur Rokk gekk glimrandi vel – myndasyrpa

Tónlistarvikunni Krakka Rökkur Rokk í Grundarfirði lauk með frábærum tónleikum í gær þar sem Skólakór Grunnskóla Grundarfjarðar steig á stokk ásamt hljómsveit. Síðustu viku hafa margir tónlistarviðburðir verið í Grundarfirði. Allt frá tónleikum í Tónlistarskóla Grundarfjarðar til nokkurra heimatónleika víðsvegar um bæinn. Skipuleggjendur eiga hrós skilið fyrir þetta frábæra framtak sem er hluti af Barnamenningarhátíð…Lesa meira