Opnaður hefur verið hjálparsími fyrir karla

Samtök um karlaathvarf hafa opnað hjálparsíma fyrir karla sem búa við ofbeldi eða standa höllum fæti gagnvart kerfinu. „Síminn er 792-1818 og öll samtöl eru trúnaðarmál. Til hjálparsímans geta karlar leitað ef þeir búa við líkamlegt, andlegt, fjárhagslegt eða kynferðislegt ofbeldi í nánu sambandi; ef þeir fá ekki að hitta börnin sín eða umgengni er tálmuð; ef þeir hafa verið bornir röngum sökum og vita ekki hvert þeir eiga að snúa sér og ef þeir þurfa einfaldlega einhvern til að tala við,“ segir í tilkynningu.

„Rannsóknir sýna að karlar eru um helmingur þolenda ofbeldis í nánum samböndum. Þeir leita sér þó síður aðstoðar, meðal annars vegna þess að úrræði hafa verið fá og þeim oft vísað frá. Hjálparsíminn er fyrsta skrefið í að breyta því. Reynt er að svara öllum símtölum. Náist ekki samband má senda tölvupóst á karlaathvarf@gmail.com og haft verður samband við fyrsta tækifæri.“