
Kröpp lægð sem mun hafa áhrif víða
Á morgun er spáð að djúp haustlægð muni hafa áhrif víða um land. Gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi, en versta veðrinu er spáð á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra, þar sem viðvaranir eru appelsínugular. Gular viðvaranir fyrir Breiðafjörð og Faxaflóa taka gildi klukkan 9 í fyrramálið og gilda til miðnættis. Lægðin mun fyrst ganga inn á sunnanvert landið í fyrramálið með hvassviðri og taka gular viðvaranir fyrst gildi þar klukkan sex í fyrramálið. Einnig mun hvessa á höfuðborgarsvæðinu um tíma snemma í fyrramálið. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir í viðtali við Vísi að lægðin hafi alla burði til þess að verða kröpp, miðað við októbermánuð. „Síðan fara skilin norður yfir og það rignir frá þeim um land allt af dálítilli ákefð fyrri hluta dagsins. Þá mun veður versna verulega á Vestfjörðum og utanverðu Snæfellsnesi,“ segir Einar.
Appelsínugul viðvörun vegna stórhríðar tekur gildi síðdegis á Vestfjörðum og svo á Norðurlandi vestra þegar líður á kvöldið. Einar segir líkur á samgöngutruflunum þar. „Og jafnvel þannig veður að af því hljótist rafmagnstruflanir. Þetta er alveg þannig veður að fólk þarf að halda sig heima,“ áréttar hann. „Við þekkjum svona djúpar lægðir yfir miðjan veturinn. Þær eru hins vegar miklu fátíðari á haustin og verða þá kannski til upp úr gömlum fellibyljum eða einhverju slíku. Það er ekkert þannig í gangi núna og það er verið að spá því að loftþrýstingur fari niður fyrir 940 hektópasköl sunnanlands um miðjan dag á morgun og það væri þá með því allra lægsta og jafnvel kannski það lægsta sem mælst hefur í mjög langri loftvogarmælisögu Íslands, það er að segja í október,“ segir Einar.
Fólk er eindregið hvatt til að fylgjast með veðurspám og -lýsingum, strax þegar líður á morgundaginn.
Frá Vegagerðinni:
"Vegfarendur eru einkum varaðir við mjög hvössum vindi undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum frá því snemma í fyrramálið og til um kl. 9. Um svipað leyti versnar veðrið mjög um norðvestanvert landið. Á Vestfjarðakjálkanum og utantil á Snæfellsnesi er spáð NA-átt, allt að ofsaveðri, yfir daginn og fram á kvöld. Mikil snjókoma og hríðarveður verða á fjallvegum. Jaðar óveðursins verður þá um Dali og utanverðan Skagafjörð og hann mjög skarpur. Mun skaplegra veður verður sunnan hans."