
Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. mm
Heitavatnslaust á nokkrum stöðum í Hvalfjarðarsveit í dag
Vegna viðgerða á hitaveitukerfi verður heitavatnslaust á nokkrum stöðum í Hvalfjarðarsveit í dag, þriðjudaginn 13. október, frá kl. 14 til 17. Samkvæmt tilkynningu frá Veitum nær lokunin til Lækjarmels, Bugðumels, Innrimels, Hagamels, Brekkumels, Lyngmels, Háamels, Lambaga og Stóra-Lambhaga. Veitur beina þeim tilmælum til íbúa að skrúfa fyrir alla heitavatnskrana til að koma í veg fyrir slys eða tjón þegar vatni verður hleypt á að nýju. Húseigendur eru jafnframt hvattir til að huga að innanhússkerfum sínum. Veitur biðjast velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.