Eldri söngnemendur Tónlistarskóla Akraness heimsóttu Dvalarheimilið Höfða og héldu tónleika fyrir íbúa. Ljósm. Kolla Ingvars.

Tónlistargleði og hlýjar stundir á Höfða

Það var sannkölluð tónlistarveisla á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi síðdegis í gær þegar eldri söngnemendur Tónlistarskóla Akraness heimsóttu heimilið og héldu tónleika fyrir íbúa. Salurinn var þétt setinn og undirtektir góðar. Ljóst var að tónlistin féll í góðan jarðveg og færði heimilisfólki ánægjulega tilbreytingu í daglegt líf. Slíkar heimsóknir eru dýrmætur þáttur í samfélaginu á Höfða, þar sem tónlistin sameinar kynslóðir, vekur minningar og skapar gleði og samveru. Lifandi tónlist hefur sérstakan mátt til að snerta fólk, ekki síst þegar kunnuglegir tónar rifja upp liðnar stundir og vekja tilfinningar sem tengjast löngu liðnum tímum.