
Þórsarar of stór biti fyrir Skallagrímskonur – næsti leikur í kvöld
Skallagrímskonur máttu sætta sig við stórt tap gegn Þór frá Akureyri í 1. deild kvenna í körfuknattleik á sunnudaginn. Lokatölur í Borgarnesi urðu 56:108, en gestirnir höfðu yfirhöndina frá upphafi til enda. Þórsarar byrjuðu af miklum krafti og leiddu 30:15 eftir fyrsta leikhluta. Skallagrímskonur náðu að halda betur í við gestina í öðrum leikhluta, sem fór 25:18, en staðan í hálfleik var 33:55. Í síðari hálfleik juku Akureyringar enn forskotið, unnu þriðja leikhluta 31:10 og þann síðasta 22:13. Munurinn á liðunum var einkum áberandi í hraðaupphlaupum, þar sem Þór skoraði 48 stig gegn níu stigum heimakvenna.