
Loðnumæling og ráðgjöf undir væntingum
Uppfærð veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og Náttúrustofnunar Grænlands (GINR) fyrir komandi loðnuvertíð er upp á ríflega 105 þúsund tonn. „Ráðgjöfin byggir á niðurstöðum bergmálsmælinga á loðnustofninum í september síðastliðnum sem reyndust töluvert undir væntingum. Vegna óhagstæðra aðstæðna nyrst á leiðangurssvæðinu náðist ekki yfir allt útbreiðslusvæði stofnsins og því má gera ráð fyrir að stærð hans sé vanmetin,“ segir í tilkynningu.