Fréttir

true

Stýrivextir óbreyttir – en tekist er á um kjarasamninga

Tilkynnti var í morgun að stýrivextir Seðlabankans haldast óbreyttir í 8%. Í tilkynningu frá stofnuninni kemur fram að verðbólga hafi ekki verið meiri í tvö ár en að flest bendi til þess að hún hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári. „Aukning mældrar verðbólgu hefur fyrst og fremst litast af áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum og hækkun…Lesa meira

true

Suðaustan hvassviðri á morgun – vindasamt við fjöll

Veðurfræðingur Vegagerðarinnar bendir á að það hvessir og fer að rigna úr suðaustri á morgun um landið suðvestanvert. Spáð er snörpum vindhviðum, um 35 m/s, á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og við Eyjafjöll frá kl. 11:00 til 16:00. Rignir talsvert á Austfjörðum á morgun með auknum líkur á grjóthruni eftir hádegi og fram á nótt.Lesa meira

true

Kvenfélagið Gleym mér ei búið að gefa mikið til samfélagsins

Dugnaðarforkarnir í kvenfélaginu Gleym mér ei í Grundarfirði hafa verið iðnar við kolann undanfarin misseri og gefið hverja gjöfina á fætur annarri. Leikskólinn Sólvellir fékk bambahús/gróðurhús og tjald til notkunar fyrir börnin. Heilsugæslan fékk nýtt skoðunarljós og bekk fyrir sjúkraþjálfunaraðstöðu. Tónlistarskólinn fékk ný hljóðfæri, Dvalarheimilið fékk sturtustól, skíðadeildin fékk veglegan styrk eftir Góugleðina og svo…Lesa meira

true

Sara Sesselja og Sóley Rósa valdar á úrtaksæfingar U15

Sara Sesselja Sveinbjörnsdóttir og Sóley Rósa Sigurjónsdóttir frá Akranesi, báðar fæddar árið 2012, hafa verið valdar til úrtaksæfinga U15 landsliðs kvenna í knattspyrnu. Stúlkurnar koma saman með landsliðshópnum dagana 15.–17. október undir stjórn Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur landsliðsþjálfara. Æfingarnar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir þróunarmót sem fram fer í byrjun nóvember og því spennandi verkefni…Lesa meira

true

Leitað að handhafa Bláskeljarinnar 2026

Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2026, verðlauna sem veitt eru fyrir framúrskarandi lausnir á sviði hringrásarhagkerfisins. Leitað er að einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum um allt land sem hafa fundið leiðir til að nýta auðlindir betur og halda verðmætum lengur í umferð. Bláskelin fær nýtt hlutverk í ár. Hingað til hafa verðlaunin…Lesa meira

true

Þúsund kílómetrar á hálfvilltum hestum um mongólsku steppuna

„Þá hélt ég að þetta væri búið“ – segir Markús Ingi Karlsson ævintýramaður Þegar Markús Ingi Karlsson lagði af stað í Mongol Derby í Mongólíu vissi hann að fram undan væru þúsund kílómetrar á hestbaki um víðáttumiklar steppur landsins. Hann vissi líka að hann fengi nýjan, lítt taminn mongólskan hest á 30–35 kílómetra fresti, að…Lesa meira

true

Foreldrafræðsla um skjátíma og skýr mörk

Foreldrafræðsla undir yfirskriftinni „Stolin athygli leitar eiganda síns“ fer fram í Tónbergi á Akranesi þriðjudaginn 13. október kl. 17:30. Þar verður sjónum beint að stafrænu umhverfi barna, skjátíma og áhrifum samfélagsmiðla. Kristín Ómarsdóttir og Skúli Bragi Geirdal, sérfræðingar hjá Netvís, fjalla um hvernig leikir og smáforrit eru hönnuð til að fanga og halda athygli barna.…Lesa meira

true

Leiðin til að læra að elska sjálfan sig

„Við komum öll einhvers staðar frá og berum öll einhvern bagga“ Kristín Magdalena Ágústsdóttir hefur komið sér fyrir með litla og hlýlega meðferðarstofu í Borgarnesi þar sem hún tekur á móti fólki sem vill vinna með tilfinningar sínar, reynslu og þau sár sem lífið kann að hafa skilið eftir. Starfsemin ber nafnið „Leiðin til að…Lesa meira

true

Fyrri kynningarfundur Landsnets verður í kvöld

Landsnet býður til tveggja opinna kynningarfunda og vinnustofa vegna valkostagreiningar fyrir Vegamótalínu 2 milli Vatnshamra í Andakíl og Vegamóta á Snæfellsnesi. Línan verður byggð sem 132 kV loftlína og henni haldið uppi með stöguðum stálröramöstrum. Fyrst um sinn verður hún rekin á 66 kV. „Markmið með framkvæmdinni er að tryggja tvítengingu Snæfellsness og að auka…Lesa meira

true

Nýtt gámasvæði og aukið öryggi á Grundartanga

Framkvæmdum við nýtt gámasvæði Faxaflóahafna á baksvæði Tangabakka á Grundartanga er lokið. Með framkvæmdunum hefur aðstaða til meðhöndlunar og geymslu gáma verið stórbætt, auk þess sem ný lýsing á svæðinu eykur öryggi starfsmanna og bætir vinnuaðstæður. Gámasvæðið hefur verið malbikað og nýju fráveitukerfi komið fyrir, með niðurföllum, regnvatnslögnum og brunnum sem tengjast núverandi lagnakerfi. Landið…Lesa meira