
Horft yfir nýja gámasvæðið við Grundartanga er vel upplýst. Starfsfólk Norðuráls, Elkem og Klafa hefur lýst ánægju með breytingarnar og jákvæð viðbrögð hafa einnig borist frá íbúum í nágrenni Grundartanga. Ljósm. Faxaflóahafnir.
Nýtt gámasvæði og aukið öryggi á Grundartanga
Framkvæmdum við nýtt gámasvæði Faxaflóahafna á baksvæði Tangabakka á Grundartanga er lokið. Með framkvæmdunum hefur aðstaða til meðhöndlunar og geymslu gáma verið stórbætt, auk þess sem ný lýsing á svæðinu eykur öryggi starfsmanna og bætir vinnuaðstæður.