Fréttir

true

Þjóðbúningamessa í Akraneskirkju

Í tilefni af 130 ára vígsluafmæli Akraneskirkju, sem var fyrr á þessu ári, verður haldin Þjóðbúningamessa í kirkjunni sunnudaginn 11. október kl. 13:00. Þar mun séra Ólöf Margrét Snorradóttir messa og kórinn Hljómur, kór eldri borgara á Akranesi, syngja. Allir eru velkomnir en ekki síst þeir sem sem eiga og vilja skarta íslenska þjóðbúningnum, en…Lesa meira

true

Stækka Kaldalæk í Sjómannagarðinum

Þessa dagana er unnið við stækkun Kaldalæks sem er í Sjómannagarðinum í Ólafsvík. Framkvæmdir hófust í ágúst og er Smiðjan Fönix aðalverktaki. Hefur Smiðjan ráðið TS vélaleigu til að sjá um alla jarðvinnu og JT sem sér um að sjálft húsið og alla trésmíði. Viðbygging ásamt tengibyggingu er 77,7 fermetrar að stærð og verður Kaldilækur…Lesa meira

true

Vilja bæta gæði þeirra farsíma sem seldir eru

Fjarskiptastofa efnir til samráðs um drög að tilmælum um prófun innflytjenda og söluaðila á virkni farsíma áður en þeir eru settir á markað á Íslandi. Eftir lokun 2G- og 3G-farsímakerfanna hér á landi hefur komið í ljós að einhverjir farsímar eru ekki að ná tengingu við neyðarnúmerið 112 þrátt fyrir að þessi sömu tæki styðji…Lesa meira

true

Þurfa að færa bátana vegna steypuvinnu

Vegna vinnu við Norðurgarðinn í Ólafsvík er takmarkað landlegupláss fyrir smábáta. Því hafa nokkrir bátar fengið stæði á bílaplani við ísverksmiðjuna. Þórður Stefánsson hafnarstjóri í Snæfellsbæ segir í samtali við Skessuhorn að enn sé hægt að koma einhverjum bátum austan megin við olíutankanna. „En hingað til hefur smábátum verið komið fyrir bakvið Norðurbakkann, en núna…Lesa meira

true

Ungmenni leika fullorðna í sketsasamkeppni

Í tilefni Barnamenningarhátíðar Vesturlands efnir Hvalfjarðarsveit til skemmtilegrar sketsasamkeppni fyrir ungmenni á Vesturlandi undir yfirskriftinni „Leiktu fullorðna.“ Þátttakendur eru hvattir til að gefa sköpunarkraftinum lausan tauminn, semja handrit, bregða sér í hlutverk og festa afraksturinn á filmu. Verkefnið gefur ungmennum þannig tækifæri til að spreyta sig á handritagerð, leik og kvikmyndagerð – og ekki síst…Lesa meira

true

Opinn fyrirlestur um streitu, kulnun og áföll

Kvenfélagið Sigurvon stendur fyrir opnum fyrirlestri í félagsheimilinu á Lýsuhóli fimmtudaginn 8. október kl. 18–21. Þar mun Margrét Grímsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsustofnun NLFÍ, fjalla um taugakerfið, streitu, kulnun og áföll, en hún hefur unnið mikið með þessi málefni í gegnum tíðina. Aðgangur er ókeypis og boðið verður upp á súpu og brauð að fyrirlestri…Lesa meira

true

Líðan nemenda batnar en einelti eykst meðal yngri barna

Líðan grunnskólanema hefur að mörgu leyti batnað undanfarin ár. Fleiri líður vel í skólanum, lífsánægja hefur aukist og færri glíma við tíða andlega vanlíðan. Á móti hefur einelti aukist meðal yngri nemenda og merki eru um vaxandi einmanaleika meðal unglinga. Þetta kemur fram í niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2026 sem lögð var fyrir nemendur í 4.–10.…Lesa meira

true

Grundaskóli og Ugluklettur meðal tilnefndra til Íslensku menntaverðlaunanna

Búið er að birta nöfn þeirra skóla og einstaklinga sem tilnefndir eru til Íslensku menntaverðlaunanna 2026. Þau verða veitt á Bessastöðum 10. nóvember næstkomandi. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum fyrir framúrskarandi skólastarf, kennslu, þróunarverkefni og iðn- og verkmenntun, auk séstakra hvatningarverðlauna. Meðal þeirra skóla sem tilnefndir eru fyrir framúrskarandi skólastarf er Grundaskóli á Akranesi.…Lesa meira

true

Fullkomin þrenna hjá 3. flokki ÍA

Þriðji flokkur karla hjá ÍA kórónaði frábært keppnistímabil um helgina þegar liðið varð bikarmeistari eftir 3:2 sigur á Breiðabliki í úrslitaleik í Akraneshöllinni. Þar með fullkomnuðu Skagastrákarnir einstaka þrennu, en þeir urðu einnig Íslandsmeistarar í september og ReyCup-meistarar í sumar. Breiðablik komst yfir í úrslitaleiknum en Skagamenn voru fljótir að svara. Styrmir Gíslason jafnaði metin…Lesa meira

true

Fundur með ríflega helmingi þingmanna kjördæmisins

Sveitarstjórnarfólk á Vesturlandi átti fund með þingmönnum Norðvesturkjördæmis síðastliðinn föstudag. Hefð er fyrir slíkum fundum í kjördæmaviku þar sem hreinskiptin umræða fer að jafnaði fram um málefni sem lúta að hagsmunum svæðisins. Fundir þessir eru hafðir lokaðir og er fjölmiðlafólki t.a.m. ekki hleypt nærri borðinu. Að þessu sinni mættu einungis fjórir af sjö þingmönnum kjördæmisins,…Lesa meira