Leikmenn 3. flokks ÍA með bikarana þrjá eftir einstaklega sigursælt keppnistímabil. Liðið varð ReyCup-, Íslands- og bikarmeistari á árinu. Ljósm. Gísli Karlsson.

Fullkomin þrenna hjá 3. flokki ÍA

Þriðji flokkur karla hjá ÍA kórónaði frábært keppnistímabil um helgina þegar liðið varð bikarmeistari eftir 3:2 sigur á Breiðabliki í úrslitaleik í Akraneshöllinni. Þar með fullkomnuðu Skagastrákarnir einstaka þrennu, en þeir urðu einnig Íslandsmeistarar í september og ReyCup-meistarar í sumar.