
Fulltrúar sveitarfélaga og þeir þingmenn sem mættu. Ljósm. ssv
Fundur með ríflega helmingi þingmanna kjördæmisins
Sveitarstjórnarfólk á Vesturlandi átti fund með þingmönnum Norðvesturkjördæmis síðastliðinn föstudag. Hefð er fyrir slíkum fundum í kjördæmaviku þar sem hreinskiptin umræða fer að jafnaði fram um málefni sem lúta að hagsmunum svæðisins. Fundir þessir eru hafðir lokaðir og er fjölmiðlafólki t.a.m. ekki hleypt nærri borðinu. Að þessu sinni mættu einungis fjórir af sjö þingmönnum kjördæmisins, þau Ólafur Adolfsson, Ingibjörg Davíðsdóttir, María Rut Kristinsdóttir og Arna Lára Jónsdóttir.