
Vilja bæta gæði þeirra farsíma sem seldir eru
Fjarskiptastofa efnir til samráðs um drög að tilmælum um prófun innflytjenda og söluaðila á virkni farsíma áður en þeir eru settir á markað á Íslandi. Eftir lokun 2G- og 3G-farsímakerfanna hér á landi hefur komið í ljós að einhverjir farsímar eru ekki að ná tengingu við neyðarnúmerið 112 þrátt fyrir að þessi sömu tæki styðji að öðru leyti almenna farsímaþjónustu og fullnægi reglum um CE-merkingu. Ástæða þessa getur tengst t.d. hugbúnaðarútgáfum farsímanna, stillingum þeirra eða samspili farsíma og farsímanets.