
Guðni Th Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands, bregður á leik með æskunni hjá Samtökum félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi á sinni forsetatíð. Ljósm. Stjórnarráðið.
Líðan nemenda batnar en einelti eykst meðal yngri barna
Líðan grunnskólanema hefur að mörgu leyti batnað undanfarin ár. Fleiri líður vel í skólanum, lífsánægja hefur aukist og færri glíma við tíða andlega vanlíðan. Á móti hefur einelti aukist meðal yngri nemenda og merki eru um vaxandi einmanaleika meðal unglinga. Þetta kemur fram í niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2026 sem lögð var fyrir nemendur í 4.–10. bekk síðastliðið vor. Alls tóku 23.881 nemendur úr 153 grunnskólum þátt í rannsókninni. Viðhorf nemenda til skólans hafa þróast í jákvæða átt. Hlutfall þeirra sem líður vel í kennslustundum hefur hækkað úr 86% árið 2024 í 89% í ár og 85% nemenda segjast almennt líka vel í skólanum. Þá hefur þeim fækkað sem eru oft þreyttir í skólanum, úr 36% árið 2023 í 30% nú.