
Sökkulinn var steyptur síðasta föstudag. Ljósm. af
Stækka Kaldalæk í Sjómannagarðinum
Þessa dagana er unnið við stækkun Kaldalæks sem er í Sjómannagarðinum í Ólafsvík. Framkvæmdir hófust í ágúst og er Smiðjan Fönix aðalverktaki. Hefur Smiðjan ráðið TS vélaleigu til að sjá um alla jarðvinnu og JT sem sér um að sjálft húsið og alla trésmíði. Viðbygging ásamt tengibyggingu er 77,7 fermetrar að stærð og verður Kaldilækur því um 120 fermetrar að framkvæmdum loknum. Með þessari viðbyggingu fjölgar salernum og meira rými fæst fyrir til dæmis fundi og minni samkomur í húsinu. Stefnt er að verklokum í byrjun júní á næsta ári.