
Margrét Grímsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsustofnun NLFÍ
Opinn fyrirlestur um streitu, kulnun og áföll
Kvenfélagið Sigurvon stendur fyrir opnum fyrirlestri í félagsheimilinu á Lýsuhóli fimmtudaginn 8. október kl. 18–21. Þar mun Margrét Grímsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsustofnun NLFÍ, fjalla um taugakerfið, streitu, kulnun og áföll, en hún hefur unnið mikið með þessi málefni í gegnum tíðina. Aðgangur er ókeypis og boðið verður upp á súpu og brauð að fyrirlestri loknum. Þau sem vilja styrkja framtakið geta lagt sitt af mörkum. Allir eru velkomnir.