Fréttir

true

Viktor með þrennu þegar Skagamenn tryggðu sæti í efri hlutanum

Skagamenn tryggðu sér í gær sæti í efri hluta Bestu deildar karla með glæsilegum 3:1 sigri á KR á Elkem vellinum á Akranesi í lokaumferðinni fyrir tvískiptingu deildarinnar. Viktor Jónsson var maður leiksins og skoraði öll þrjú mörk ÍA. Mikið var undir hjá báðum liðum. Skagamenn þurftu á góðum úrslitum að halda í baráttunni um…Lesa meira

true

Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna ungmenna

Hvalfjarðarsveit hefur opnað fyrir umsóknir um sérstakan húsnæðisstuðning vegna 15–17 ára ungmenna sem þurfa að dvelja fjarri lögheimili sínu vegna náms. Stuðningurinn er ætlaður foreldrum og forsjáraðilum ungmenna á þessum aldri sem leigja herbergi, dvelja á heimavist eða námsgörðum fjarri heimili sínu. Hann er óháður tekjum og eignum foreldra eða forsjáraðila. Samkvæmt reglum Hvalfjarðarsveitar getur…Lesa meira

true

Auglýsa styrki til þróunar búgreina

Atvinnuvegaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna í fjórum búgreinum; garðyrkju, sauðfjárrækt, nautgriparækt og hrossarækt. Umsóknarfrestur er til 15. október. Styrkirnir eru ætlaðir verkefnum sem stuðla að þróun og eflingu viðkomandi búgreina. Í nautgriparækt er áhersla á rannsóknir og þróunarverkefni en í sauðfjárrækt geta verkefni meðal annars snúið að kennslu, rannsóknum, leiðbeiningum og…Lesa meira

true

Algjört metár í vændum í fiskeldinu

Útflutningsverðmæti eldisafurða í fiski nam 4,8 milljörðum króna í júlí. Samtals eru verðmætin komin í 40,8 milljarða króna á fyrstu sjö mánuðum ársins og hafa aldrei verið meiri á þessum tíma árs. Í Radarnum, vefriti SFS, kemur fram að teknu tilliti til gengisbreytinga nemur aukningin tæpum 36% frá sama tímabili í fyrra, þegar verðmætin voru…Lesa meira

true

Síðasti deildarleikurinn fyrir skiptingu

Það verður allt lagt undir í leik gömlu erkifjendanna ÍA og KR þegar liðin mætast á Elkem vellinum á Akranesi í mikilvægum leik í Bestu deildinni klukkan 14 í dag. Þetta verður jafnframt síðasti deildarleikurinn í sumar áður en deildinni verður skipt upp. Með sigri í dag geta Skagamenn tryggt sér sæti meðal sex efstu…Lesa meira

true

Fulltrúum ferðaþjónustunnar í Hvalfjarðarsveit boðið til fundar á morgun

„Ferðaþjónusta í Hvalfjarðarsveit hefur vaxið á undanförnum árum og innan sveitarfélagsins starfa fjölmargir aðilar sem bjóða upp á fjölbreytta þjónustu. Sveitarstjórn og menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar hefur fjallað um þá jákvæðu þróun sem að framan er greint á fundum sínum fyrr í sumar og var samþykkt að sveitarfélagið hefði frumkvæði að því að kalla saman…Lesa meira

true

Skallagrímur tryggði sér sæti í fjórðu deild með dramatískum sigri

Skallagrímur tryggði sér sæti í 4. deild karla í knattspyrnu með 4:1 sigri á Stokkseyri í síðari undanúrslitaleik liðanna í úrslitakeppni 5. deildar á Skallagrímsvelli í gær. Borgnesingar unnu einvígið samanlagt 5:3 eftir mikla dramatík á lokakaflanum. Stokkseyri hafði unnið fyrri leikinn 2:1 og því var ljóst að Skallagrímsmenn þurftu að sækja til sigurs. Þeir…Lesa meira

true

Kári vann mikilvægan sigur á Grenivík

Liðsmenn Knattspyrnufélagsins Kára unnu mikilvægan 2-0 útisigur gegn Magna á Grenivík í leik í 2. deildinni í gær. Liðið heldur í vonina um að vinna sér sæti í Lengjudeildinni næsta sumar. Marinó Hilmar Ásgeirsson kom Kára yfir og Grétar Jónatan Pálmason skoraði annað markið strax í kjölfarið og tryggði liðinu stigin þrjú. Kári er nú…Lesa meira

true

Víkingar töpuðu stórt gegn KFG

Víkingur Ólafsvík mátti þola 4:1 tap gegn KFG í 2. deild karla í gær. Garðbæingar voru í mikilli þörf fyrir stigin í fallbaráttunni og með sigrinum lyftu þeir sér úr fallsæti þegar aðeins ein umferð er eftir af mótinu. Róbert Kolbeins Þórarinsson kom KFG yfir á 22. mínútu og staðan var 1:0 í hálfleik. Heimamenn…Lesa meira

true

Skagakonur máttu þola tap gegn Haukum

Skagakonur máttu sætta sig við 1:3 tap gegn Haukum í 17. umferð Lengjudeildar kvenna í Akraneshöll í gær. Gestirnir byrjuðu af miklum krafti og ÍA náði aldrei að vinna upp forskotið sem Haukar náðu strax á upphafsmínútunum. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir kom Haukum yfir þegar aðeins tvær mínútur voru liðnar og þremur mínútum síðar bætti Sara…Lesa meira