
Skagakonur máttu þola tap gegn Haukum
Skagakonur máttu sætta sig við 1:3 tap gegn Haukum í 17. umferð Lengjudeildar kvenna í Akraneshöll í gær. Gestirnir byrjuðu af miklum krafti og ÍA náði aldrei að vinna upp forskotið sem Haukar náðu strax á upphafsmínútunum. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir kom Haukum yfir þegar aðeins tvær mínútur voru liðnar og þremur mínútum síðar bætti Sara Björk Gunnarsdóttir öðru marki við. Staðan var því orðin 0:2 eftir aðeins fimm mínútna leik og þannig stóðu leikar í hálfleik.