Svipmynd úr leiknum. Ljósm. Skallagrímur

Skallagrímur tryggði sér sæti í fjórðu deild með dramatískum sigri

Skallagrímur tryggði sér sæti í 4. deild karla í knattspyrnu með 4:1 sigri á Stokkseyri í síðari undanúrslitaleik liðanna í úrslitakeppni 5. deildar á Skallagrímsvelli í gær. Borgnesingar unnu einvígið samanlagt 5:3 eftir mikla dramatík á lokakaflanum. Stokkseyri hafði unnið fyrri leikinn 2:1 og því var ljóst að Skallagrímsmenn þurftu að sækja til sigurs. Þeir fengu óskabyrjun þegar dæmd var vítaspyrna á fjórðu mínútu. Alejandro Serallvo Gomez steig á punktinn og skoraði af öryggi. Fleiri urðu mörkin ekki fyrir hlé.