Fréttir

true

Atvinnuleysi jókst talsvert í sumar

Í júlímánuði var fjöldi atvinnulausra á aldrinum 16 til 74 ára 14.500 samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 6,3%, hlutfall starfandi var 73,8% og atvinnuþátttaka 78,7%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 1,2 prósentustig á milli júní og júlí 2026, hlutfall starfandi lækkaði um 0,9 prósentustig og atvinnuþátttaka jókst um 0,1 prósentustig. „Samkvæmt mælingu…Lesa meira

true

Mikið fjör í upphafi annar í FSN

Skólastarf er komið á fullt í skólum landsins og Fjölbrautaskóli Snæfellinga er engin undantekning á því. Nemendur brugðu á leik miðvikudaginn 26. ágúst síðastliðinn en þá stóð Nemendafélag FSN fyrir ratleik þar sem nýnemar létu ljós sitt skína. Allskonar þema var í hópunum og þar mátti sjá einhyrninga, kúreka, trúða og fleiri skondnar fígúrur. Ný…Lesa meira

true

Hópur hestafólks á ferð

Helgina 28. – 30. ágúst voru hestamenn á Snæfellsnesi að gera sér glaðan dag með stórri hestaferð um nesið. Miðvikudaginn 27. ágúst var ferðast frá Skildi að Bjarnarhöfn. Daginn eftir var svo farið áleiðis að Berserkseyri og svo á laugardeginum að Þórdísarstöðum þar sem slegið var upp grillveislu. Veðrið lék við hestamennina sem hrepptu fínustu…Lesa meira

true

Haraldur Noregskonungur látinn

Haraldur Noregskonungur lést í nótt 89 ára að aldri. Hann hefur um hríð verið heilsuveill en blóðsjúkdómur varð hans banamein. Norska hirðin greindi frá andláti Haraldar konungs á sjöunda tímanum í morgun, tveimur klukkustundum eftir að hann lést. Hákon, sonur hans, varð konungur um leið og Haraldur kvaddi. Verður hann fjórði konungur landsins frá því…Lesa meira

true

Hæglátt veður á kjördag

Útlit er fyrir að veðrið verði prýðilegt á morgun, þegar þjóðin kýs um áframhald viðræðna við Evrópusambandið. Það verður hæg breytileg átt, skýjað með köflum á landinu og dálitlir skúrir á víð og dreif. Hiti verður 7 til 13 stig.Lesa meira

true

Nýtt ljóð og lag tileinkað Hvalfjarðarsveit

Í tilefni af 20 ára afmæli Hvalfjarðarsveitar hefur verið samið sérstakt ljóð og lag sveitarfélaginu til heiðurs. Gunnar J. Straumland íbúi í sveitarfélaginu samdi ljóðið en Jósep Gíslason tónsetti það. Verkið var frumflutt við hátíðlega athöfn á afmælistónleikum Hvalfjarðarsveitar í Hallgrímskirkju í Saurbæ um liðna helgi. Þar komu fram um 30 flytjendur sem allir eiga…Lesa meira

true

Talning atkvæða verður í Borgarnesi

Vísbendingar eru um að góð kjörsókn verði í þjóðaratkvæðagreiðslunni næstkomandi laugardag um áframhald viðræðna við Evrópusambandið. Rök fyrir því er mikil þátttaka í utankjörfundar atkvæðagreiðslu fram til þessa. Fram hefur komið að í hádeginu í gær höfðu tæplega 44 þúsund kosið utan kjörfundar, sem er mun meiri þátttaka en var í síðustu kosningum. Vera kann…Lesa meira

true

Reglugerð sett um símafrí í grunnskólum

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskóla og á frístundaheimilum. Með reglugerðinni eru í fyrsta sinn settar samræmdar reglur um símafrí í grunnskólum landsins. „Markmiðið er að skapa aukinn námsfrið, efla vellíðan og félagsleg tengsl barna og stuðla að jákvæðum skólabrag,“ segir í tilkynningu…Lesa meira

true

Borgarbyggð vann lokaorrustu púttkeppni eldri borgara

Eldri borgarar á Akranesi og Borgarbyggð hefa háð púttkeppni sín á milli undanfarin þrettán ár og komið saman þrisvar sinnum hvert sumar. Síðasta keppni ársins fór fram að Hamri í Borgarnesi þriðjudaginn 25. ágúst. Það er því í 42. sinn sem liðin etja kappi um Húsasmiðjubikarinn sem veittur er stigahærra liðinu. Ingimundur Ingimundarson hefur ásamt…Lesa meira

true

Minning Lovísu Hrundar lifir áfram í bænum

Aðstandendur Minningarsjóðs Lovísu Hrundar Svavarsdóttur færði Akraneskaupstað tvo granítbekki að gjöf í dag til minningar um Lovísu Hrund, sem lést í hörmulegu bílslysi 17 ára gömul á Akrafjallsvegi árið 2013. Hún hefði því orðið 30 ára á síðasta ári. Lovísa lést þegar ölvaður ökumaður, sem kom akandi úr gagnstæðri átt, ók framan á bifreið hennar.…Lesa meira