Haraldur Noregskonungur látinn

Haraldur Noregskonungur lést í nótt 89 ára að aldri. Hann hefur um hríð verið heilsuveill en blóðsjúkdómur varð hans banamein. Norska hirðin greindi frá andláti Haraldar konungs á sjöunda tímanum í morgun, tveimur klukkustundum eftir að hann lést. Hákon, sonur hans, varð konungur um leið og Haraldur kvaddi. Verður hann fjórði konungur landsins frá því Noregur öðlaðist sjálfstæði 1905.

Norska þjóðin syrgir ástsælan og farsælan konung. Þjóðhöfðingjar víða um heim hafa sent samúðartilkynningar, meðal annarra Halla Tómasdóttir forseti Íslands. Hún hefur vottað norsku konungsfjölskyldunni og norsku þjóðinni samúð vegna fráfalls Haraldar konungs:

„Ég minnist hans með mikilli hlýju og þakklæti. Hlýja hans, gleði og létt lund gerðu góð kynni okkar sérstaklega eftirminnileg. Hugur minn er hjá fjölskyldu hans og frændum okkar í Noregi á þessari sorgarstundu,“ skrifaði Halla.