
Reglugerð sett um símafrí í grunnskólum
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskóla og á frístundaheimilum. Með reglugerðinni eru í fyrsta sinn settar samræmdar reglur um símafrí í grunnskólum landsins. „Markmiðið er að skapa aukinn námsfrið, efla vellíðan og félagsleg tengsl barna og stuðla að jákvæðum skólabrag,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.