Þessi kúrekahópur tók þátt í ratleiknum og stilltu sér upp fyrir ljósmyndara í anddyri skólans. Ljósmyndir: tfk

Mikið fjör í upphafi annar í FSN

Skólastarf er komið á fullt í skólum landsins og Fjölbrautaskóli Snæfellinga er engin undantekning á því. Nemendur brugðu á leik miðvikudaginn 26. ágúst síðastliðinn en þá stóð Nemendafélag FSN fyrir ratleik þar sem nýnemar létu ljós sitt skína. Allskonar þema var í hópunum og þar mátti sjá einhyrninga, kúreka, trúða og fleiri skondnar fígúrur.