
Hæglátt veður á kjördag
Útlit er fyrir að veðrið verði prýðilegt á morgun, þegar þjóðin kýs um áframhald viðræðna við Evrópusambandið. Það verður hæg breytileg átt, skýjað með köflum á landinu og dálitlir skúrir á víð og dreif. Hiti verður 7 til 13 stig.