Atvinnuleysi jókst talsvert í sumar

Í júlímánuði var fjöldi atvinnulausra á aldrinum 16 til 74 ára 14.500 samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 6,3%, hlutfall starfandi var 73,8% og atvinnuþátttaka 78,7%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 1,2 prósentustig á milli júní og júlí 2026, hlutfall starfandi lækkaði um 0,9 prósentustig og atvinnuþátttaka jókst um 0,1 prósentustig.