Talning atkvæða verður í Borgarnesi

Vísbendingar eru um að góð kjörsókn verði í þjóðaratkvæðagreiðslunni næstkomandi laugardag um áframhald viðræðna við Evrópusambandið. Rök fyrir því er mikil þátttaka í utankjörfundar atkvæðagreiðslu fram til þessa. Fram hefur komið að í hádeginu í gær höfðu tæplega 44 þúsund kosið utan kjörfundar, sem er mun meiri þátttaka en var í síðustu kosningum. Vera kann að árstíminn ráði þar einhverju, en langt er síðan þjóðin kaus í ágústmánuði, þegar margir eru enn í sumarfríi.