Hrönn Ásgeirsdóttir og Svavar S. Guðmundsson foreldrar Lovísu Hrundar afhentu gjöfina fyrir hönd Minningarsjóðsins. Texti og myndir: ÓHK

Minning Lovísu Hrundar lifir áfram í bænum

Aðstandendur Minningarsjóðs Lovísu Hrundar Svavarsdóttur færði Akraneskaupstað tvo granítbekki að gjöf í dag til minningar um Lovísu Hrund, sem lést í hörmulegu bílslysi 17 ára gömul á Akrafjallsvegi árið 2013. Hún hefði því orðið 30 ára á síðasta ári. Lovísa lést þegar ölvaður ökumaður, sem kom akandi úr gagnstæðri átt, ók framan á bifreið hennar. Með gjöfinni vill fjölskylda hennar bæði halda minningu Lovísu á lofti og minna á mikilvægi forvarna gegn ölvunarakstri.