Fréttir

true

Hlaðan í Borgarnesi formlega vígð – myndasyrpa

Fjölmenni íbúa og gesta kom saman í Borgarnesi síðdegis í gær þegar Borgarbyggð hélt vígsluhátíð nýs fjölnota íþróttahúss við Skallagrímsvöll. Eins og fram kom í frétt Skessuhorns er kostnaður við byggingu hússins um 1,8 milljarðar króna og er verkið innan ramma fjárhagsáætlunar. Það var verktakafyrirtækið Ístak sem byggði húsið og þótti standa sig vel í…Lesa meira

true

Look North með tónleika í Hallgrímskirkju í Saurbæ

Tríóið Look North heldur tónleika í Hallgrímskirkju í Saurbæ sunnudaginn 30. ágúst kl. 16. Tónleikarnir eru liður í tónleikaferð tríósins um Ísland, en það kemur jafnframt fram á Jazzhátíð Reykjavíkur í Hörpu. Tríóið skipa Célestine De Williencourt, sem syngur og leikur á flautu, Daniel Beaussier, sem leikur á saxófón, klarinett, flautu, óbó og enskt horn,…Lesa meira

true

Akraneskirkja hjarta samfélagsins á Skaganum í 130 ár

Akraneskirkja fagnaði 130 ára vígsluafmæli sínu á dögunum og var nær fullt hús við hátíðarguðsþjónustu af því tilefni á sunnudaginn. Sr Þráinn Haraldsson, sóknarprestur á Akranesi, segir kirkjuna hafa verið mikilvægan hluta af samfélaginu allan þennan tíma; stað þar sem kynslóðir Skagamanna hafa komið saman á stórum stundum lífsins, í gleði jafnt sem sorg. „Akraneskirkja…Lesa meira

true

Starfshópur um ferjusiglingar hefur störf

Starfshópur um mótun nýrrar ferjuáætlunar, sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra skipaði síðsumars, hefur nú hafið störf. Gert er ráð fyrir að hópurinn ljúki störfum fyrir 1. desember nk. Fyrirkomulag ferjusiglinga í sumar mætti harðri gagnrýni í ljósi þess að Breiðafjarðarferjan Baldur var tekin úr siglingum á Breiðafirði og sett í siglingar samhliða Herjólfi til Vestmannaeyja. Brotthvarf…Lesa meira

true

Veitur hefja útskolun stofnlagnar frá Grábrók

Þriðjudaginn 1. september hefja Veitur útskolun á stofnlögn vatnsveitu frá Grábrók að Borgarnesi. Markmiðið er að tryggja eins hreint neysluvatn og kostur er en áætlað er að vinnan standi yfir í tvær til þrjár vikur. Á meðan útskolun stendur yfir geta íbúar orðið varir við lágan vatnsþrýsting og jafnvel tímabundið vatnsleysi hluta úr degi. Þá…Lesa meira

true

Skilyrði að segjast vera Framsóknarmenn

Í 37 ár hefur kjarni nokkurra vina og veiðifélaga stundað veiðar í Laxá í Leirársveit. Skilyrði til að mega slást í hópinn er að játa sig sem Framsóknarmann í veiðihúsinu,“ segir Hjálmar Árnason fv. skólameistari og alþingismaður. Hann bætir strax við: „Með okkur hafa verið alls kyns karlar úr hinum ýmsu flokkum en sambúðin verið…Lesa meira

true

Nýtt íþróttahús vígt í dag í Borgarnesi

Nýtt fjölnota íþróttahús við Skallagrímsvöll í Borgarnesi verður formlega vígt síðdegis í dag, 26. ágúst. Í kjölfar alútboðs samdi Borgarbyggð við verktakafélagið Ístak um byggingu hússins. Hafa framkvæmdir gengið vel. Tilboð Ístaks hljóðaði upp á 1.754 milljónir króna, sem var 95% af kostnaðaráætlun sveitarfélagsins. Í kjölfar fyrirspurnar Skessuhorns í gær upplýsir Unnur Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri…Lesa meira

true

ÍA stúlkur Íslandsmeistarar í 2. flokki

Stúlkur ÍA í 2. flokki í knattspyrnu tryggðu sér í gær Íslandsmeistaratitilinn í B-deild eftir öruggan sigur á Gróttu/KR. Skagastúlkur hafa verið í miklu stuði í sumar og er titillinn í höfn þótt ein umferð sé enn eftir af mótinu. ÍA hefur leikið átta leiki í deildinni, unnið sjö þeirra og gert eitt jafntefli. Liðið…Lesa meira

true

Vinna í gangi við malbikun framhjáhlaups

Í dag frá klukkan 9-16 er unnið að malbikun framhjáhlaups og tengingar við Hringveg -Vesturlandsveg, framhjá Baulu og Borgarfjarðarbraut. Umferð verður handstýrt á kafla þegar það þarf og hægt verður á umferðarhraða. „Vinsamlegast virðið merkingar og hraðatakmarkanir. Búast má við einhverjum smá umferðatöfum,“ segir í tilkynningu.Lesa meira