
Prestar Garða- og Saurbæjarprestakalls; Sr Þóra Björg Sigurðardóttir, Sr Þráinn Haraldsson og Sr Ólöf Margrét Snorradóttir fyrir framan Vinaminni sem fagnaði jafnframt 40 ára afmæli. Ljósm. Akraneskirkja.
Akraneskirkja hjarta samfélagsins á Skaganum í 130 ár
Akraneskirkja fagnaði 130 ára vígsluafmæli sínu á dögunum og var nær fullt hús við hátíðarguðsþjónustu af því tilefni á sunnudaginn. Sr Þráinn Haraldsson, sóknarprestur á Akranesi, segir kirkjuna hafa verið mikilvægan hluta af samfélaginu allan þennan tíma; stað þar sem kynslóðir Skagamanna hafa komið saman á stórum stundum lífsins, í gleði jafnt sem sorg. „Akraneskirkja hefur verið þetta heimili í 130 ár þar sem Skagamenn hafa komið saman í gleði og sorg, við athafnir lífsins, en líka einfaldlega til að setjast niður á sunnudegi, taka þátt í guðsþjónustu, hugleiða lífið og tilveruna og sækja í andlega næringu, kyrrð og ró,“ segir Þráinn í samtali við Skessuhorn.