
„Happy hour“ á bakkanum um síðustu helgi. „Þrátt fyrir úrhellis rigningu var þetta skemmtileg stund enda félagsskapurinn frábær. Ljósm. há
Skilyrði að segjast vera Framsóknarmenn
Í 37 ár hefur kjarni nokkurra vina og veiðifélaga stundað veiðar í Laxá í Leirársveit. Skilyrði til að mega slást í hópinn er að játa sig sem Framsóknarmann í veiðihúsinu,“ segir Hjálmar Árnason fv. skólameistari og alþingismaður. Hann bætir strax við: „Með okkur hafa verið alls kyns karlar úr hinum ýmsu flokkum en sambúðin verið friðsamleg og skemmtileg enda menn saman komnir til að skemmta sér og njóta þess að vera í góðum félagsskap við fallega á. Nokkrir hafa reyndar sagt sig frá framsóknarmennsku eftir veiðiferð. Við höfum þannig kynnst mörgum fínum og skemmtilegum mönnum sem hafa komið og farið. Nýir menn falla yfirleitt einkar vel í hópinn,“ segir Hjálmar.