
Dæluhús Grábrókarveitu.
Veitur hefja útskolun stofnlagnar frá Grábrók
Þriðjudaginn 1. september hefja Veitur útskolun á stofnlögn vatnsveitu frá Grábrók að Borgarnesi. Markmiðið er að tryggja eins hreint neysluvatn og kostur er en áætlað er að vinnan standi yfir í tvær til þrjár vikur. Á meðan útskolun stendur yfir geta íbúar orðið varir við lágan vatnsþrýsting og jafnvel tímabundið vatnsleysi hluta úr degi. Þá getur orðið vart við grugg í vatni, einkum á ákveðnum svæðum ofarlega í Borgarfirði. Verði vatnið gruggugt er fólki ráðlagt að láta kalt vatn renna þar til það verður tært,“ segir í tilkynningu.