Þingmenn, sveitarstjórnarfólk og aðrir gestir vígðu húsið með markspyrnum. Texti og myndir: MM

Hlaðan í Borgarnesi formlega vígð – myndasyrpa

Fjölmenni íbúa og gesta kom saman í Borgarnesi síðdegis í gær þegar Borgarbyggð hélt vígsluhátíð nýs fjölnota íþróttahúss við Skallagrímsvöll. Eins og fram kom í frétt Skessuhorns er kostnaður við byggingu hússins um 1,8 milljarðar króna og er verkið innan ramma fjárhagsáætlunar. Það var verktakafyrirtækið Ístak sem byggði húsið og þótti standa sig vel í alla staði. Unnur Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri stýrði athöfninni. Heiðursgestur var Willum Þór Þórsson fv. ráðherra og forseti ÍSÍ sem óskaði íbúum til hamingju frá frábæra aðstöðu. Það gerður einnig fulltrúar KSÍ og UMFÍ og bæði núverandi og fyrrverandi forsetar sveitarstjórnar tóku til máls. Afreksíþróttakonan Guðrún Karitas Hallgrímsdóttir sleggjukastari frá Vatnshömrum flutti ávarp. Í kjölfar íbúakönnunar um nafn á höllina kynnti Sigurður Guðmundsson formaður byggðarráðs þá ákvörðun að húsið fengi nafnið Hlaðan. Er sú nafngift með skýrskotun í gælunafn gamla íþróttahússins sem nefnt er Fjósið í röðum körfuboltafólks. Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit færði kveðjur annarra sveitarfélaga á Vesturlandi og færði Borgarbyggð peningagjöf til kaupa á búnaði í húsið.