
Á kortinu sést hvaða 1600 metra langa kafla unnið er við að malbika.
Vinna í gangi við malbikun framhjáhlaups
Í dag frá klukkan 9-16 er unnið að malbikun framhjáhlaups og tengingar við Hringveg -Vesturlandsveg, framhjá Baulu og Borgarfjarðarbraut. Umferð verður handstýrt á kafla þegar það þarf og hægt verður á umferðarhraða. „Vinsamlegast virðið merkingar og hraðatakmarkanir. Búast má við einhverjum smá umferðatöfum,“ segir í tilkynningu.