
Baldur á siglingu.
Starfshópur um ferjusiglingar hefur störf
Starfshópur um mótun nýrrar ferjuáætlunar, sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra skipaði síðsumars, hefur nú hafið störf. Gert er ráð fyrir að hópurinn ljúki störfum fyrir 1. desember nk. Fyrirkomulag ferjusiglinga í sumar mætti harðri gagnrýni í ljósi þess að Breiðafjarðarferjan Baldur var tekin úr siglingum á Breiðafirði og sett í siglingar samhliða Herjólfi til Vestmannaeyja. Brotthvarf Baldurs af Breiðafirði skapaði þannig forsendubrest fyrir ferðaþjónustu beggja vegna fjarðar um margra vikna skeið.