
Nýtt fjölnota íþróttahús við enda Skallagrímsvallar. Ljósm. mm
Nýtt íþróttahús vígt í dag í Borgarnesi
Nýtt fjölnota íþróttahús við Skallagrímsvöll í Borgarnesi verður formlega vígt síðdegis í dag, 26. ágúst. Í kjölfar alútboðs samdi Borgarbyggð við verktakafélagið Ístak um byggingu hússins. Hafa framkvæmdir gengið vel. Tilboð Ístaks hljóðaði upp á 1.754 milljónir króna, sem var 95% af kostnaðaráætlun sveitarfélagsins.