Fréttir

true

Endurnýjaðar rennibrautir teknar í notkun í Borgarnesi

Það var líf og fjör við sundlaugina í Borgarnesi síðdegis í dag þegar fram fór vígsla á endurnýjuðum rennibrautum í Skallagrímslitunum. Gömlu brautirnar voru hátt í 30 ára gamlar og voru því teknar niður fyrr á árinu. Allt trefjaplast var endurnýjað í brautunum en stoðir lagfærðar og endurnýttar. Fulltrúar ungu kynslóðarinnar drógu spil um röð…Lesa meira

true

Mikill fjöldi skráninga í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka

Yfir 15 þúsund keppendur eru nú skráðir í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer laugardaginn 22. ágúst og styttist í að uppselt verði í heilt og hálft maraþon. „Við hvetjum hlaupara sem vilja ná sér í miða í lengri hlaupin að hlaupa til því nú eru aðeins örfáir miðar eftir í heilt og hálft maraþon. Svo…Lesa meira

true

Glatt á hjalla í stórafmæli Landsbankans og TM í dag

Landsbankinn fagnar um þessar mundir 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli. Af því tilefni buðu fyrirtækin landsmönnum að fagna með sér í útibúum Landsbankans um allt land í dag, fimmtudaginn 20. ágúst. Þegar blaðamann Skessuhorns bar að garði þá var sjálfur útibússtjórinn að bera fram afmæliskökuna með brosi á bör. Það var greinilega…Lesa meira

true

Halla Sif ein af kvenhetjum FAO

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis á Suðurlandi, hefur verið valin í hóp fyrstu hundrað kvenhetja Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) í landbúnaði og byggðaþróun. Tilnefningar með nöfnum 600 kvenna frá 131 landi bárust til FAO. Halla Sif var tilnefnd af atvinnuvegaráðuneytinu en öllum aðildarríkjum FAO bauðst að tilnefna. Í bréfi…Lesa meira

true

Fullfermi í fyrsta túr sem skipstjóri

Harðbakur EA 3, togari Samherja, landaði í gærkvöldi í Grundarfirði fullfermi sem fer til vinnslu í landvinnslum félagsins á Akureyri og Dalvík. Skipstjóri var Grundfirðingurinn Lýður Valgeir Jóhannesson og var þetta hans fyrsta veiðiferð sem skipstjóri. Lýður útskrifaðist frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 2010 og hefur flest árin eftir nám starfað hjá Samherja, þar af…Lesa meira

true

Krefjandi Ljósufjallaganga með hraunbaði og kvöldverði í lokin

Ferðafélag Snæfellsness efnir laugardaginn 29. ágúst til krefjandi göngu á Ljósufjöll þar sem stefnt verður á þrjá tinda ef veður og aðstæður leyfa. Að göngu lokinni bíður þátttakenda kærkomin slökun í hraunbaðinu á Miðhrauni og kvöldverður í Hlöðunni. Hópurinn leggur af stað kl. 9 að morgni og er gert ráð fyrir að gönguferðin sjálf taki…Lesa meira

true

Stómi er á engan hátt endir á lífinu

Auður Helgadóttir Möller segir frá reynslu sinni af lífinu með stóma og vill með opinskárri frásögn sinni draga úr fordómum og sýna að hægt er að lifa innihaldsríku og góðu lífi þrátt fyrir stóma „Ég geri allt sem ég gerði áður, nákvæmlega allt. Ég þarf bara að aðlaga mig,“ segir Auður Helgadóttir Möller í Borgarnesi.…Lesa meira

true

Klapparfljótið gefur vel

„Það er búið að veiða 41 lax í sumar í Hvolsá og Staðarhólsá,“ segir Úlfar Reynisson sem var að hætta veiðum í góðra vina hópi. „Við veiddum sex laxa, tvo sjóbirtinga og 15 – 20 bleikjur.  Það vantar rigningu, báðar árnar eru vatnslitlar. Það er óvenjulítið vatn í Brekkudalsá og þess vegna er óvenjulítið vatn…Lesa meira

true

Tvö mörk Naim tryggðu Víkingi sigur í Ólafsvík

Víkingur Ólafsvík vann mikilvægan 2:1 sigur á Þrótti Vogum þegar liðin mættust á Ólafsvíkurvelli í 18. umferð 2. deildar karla í gær. 110 áhorfendur fylgdust með leiknum. Naim Aaras El Hmaidi var maður leiksins í liði heimamanna og skoraði bæði mörk Víkings. Hann kom liði sínu yfir á 30. mínútu og staðan var 1:0 í…Lesa meira

true

Garðeigendur hvattir til að halda gróðri innan lóðamarka

Gróður hefur tekið vel við sér í sumar – ekki hvað síst fyrir sérlega góða vætutíð – og eru garðeigendur á Akranesi nú hvattir til að huga að trjám og runnum sem vaxið hafa út fyrir lóðamörk og inn á gangstéttir, göngustíga eða götur. Akraneskaupstaður minnir á að mikilvægt sé að halda gróðri í skefjum…Lesa meira