
Einn af þeim fyrstu sem fór í bröttustu brautina. Svipurinn á öllum var álíka, enda voru menn að fara fyrstu ferðina. Ljósmyndir: mm
Endurnýjaðar rennibrautir teknar í notkun í Borgarnesi
Það var líf og fjör við sundlaugina í Borgarnesi síðdegis í dag þegar fram fór vígsla á endurnýjuðum rennibrautum í Skallagrímslitunum. Gömlu brautirnar voru hátt í 30 ára gamlar og voru því teknar niður fyrr á árinu. Allt trefjaplast var endurnýjað í brautunum en stoðir lagfærðar og endurnýttar. Fulltrúar ungu kynslóðarinnar drógu spil um röð í fyrstu ferðina og voru það ásarnir sem fóru fyrstir og svo koll af kolli. Fulltrúar flokkanna í sveitarstjórn stýrðu viðburðinum ásamt Unni Brá Konráðsdóttur sveitarstjóra.