
Mikill fjöldi skráninga í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
Yfir 15 þúsund keppendur eru nú skráðir í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer laugardaginn 22. ágúst og styttist í að uppselt verði í heilt og hálft maraþon. „Við hvetjum hlaupara sem vilja ná sér í miða í lengri hlaupin að hlaupa til því nú eru aðeins örfáir miðar eftir í heilt og hálft maraþon. Svo hvetjum við líka öll þau sem vilja fara styttri vegalengdir til að skrá sig í þær,“ segir Hrefna Hlín Sveinbjörnsdóttir, sviðsstjóri viðburðarsviðs hjá Íþróttabandalagi Reykjavíkur.