Lýður Valgeir Jóhannesson skipstjóri í brúnni á Harðbak EA. Ljósm. aðsend

Fullfermi í fyrsta túr sem skipstjóri

Harðbakur EA 3, togari Samherja, landaði í gærkvöldi í Grundarfirði fullfermi sem fer til vinnslu í landvinnslum félagsins á Akureyri og Dalvík. Skipstjóri var Grundfirðingurinn Lýður Valgeir Jóhannesson og var þetta hans fyrsta veiðiferð sem skipstjóri. Lýður útskrifaðist frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 2010 og hefur flest árin eftir nám starfað hjá Samherja, þar af undanfarin fimm ár sem fyrsti stýrimaður á Harðbak. „Ég fékk fékk hringingu með nokkurra daga fyrirvara og viðurkenni fúslega að eftir símtalið varð ég nokkuð stressaður við tilhugsunina um að bera fulla ábyrgð á áhöfninni og skipinu. Þegar um borð var komið róaðist hugurinn, enda Harðbakur mjög gott skip og áhöfnin frábær og samheldin,“ segir Lýður.