
Svipmynd úr leiknum. Ljósm. af
Tvö mörk Naim tryggðu Víkingi sigur í Ólafsvík
Víkingur Ólafsvík vann mikilvægan 2:1 sigur á Þrótti Vogum þegar liðin mættust á Ólafsvíkurvelli í 18. umferð 2. deildar karla í gær. 110 áhorfendur fylgdust með leiknum. Naim Aaras El Hmaidi var maður leiksins í liði heimamanna og skoraði bæði mörk Víkings. Hann kom liði sínu yfir á 30. mínútu og staðan var 1:0 í hálfleik. Naim var síðan aftur á ferðinni á 57. mínútu og tvöfaldaði forystuna.