
Garðeigendur hvattir til að halda gróðri innan lóðamarka
Gróður hefur tekið vel við sér í sumar - ekki hvað síst fyrir sérlega góða vætutíð - og eru garðeigendur á Akranesi nú hvattir til að huga að trjám og runnum sem vaxið hafa út fyrir lóðamörk og inn á gangstéttir, göngustíga eða götur. Akraneskaupstaður minnir á að mikilvægt sé að halda gróðri í skefjum við almannafæri svo tryggja megi greiðar og öruggar leiðir fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Sérstaklega getur gróður sem teygir sig yfir gangstéttir og stíga þrengt að umferð og skert yfirsýn.