
Hannes Marinó Ellertsson útibússtjóri brá sér í hlutverk „veitingastjóra“ og bar afmælistertuna fram. Ljósm. ÓHK.
Glatt á hjalla í stórafmæli Landsbankans og TM í dag
Landsbankinn fagnar um þessar mundir 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli. Af því tilefni buðu fyrirtækin landsmönnum að fagna með sér í útibúum Landsbankans um allt land í dag, fimmtudaginn 20. ágúst. Þegar blaðamann Skessuhorns bar að garði þá var sjálfur útibússtjórinn að bera fram afmæliskökuna með brosi á bör. Það var greinilega glatt á hjalla hjá starfsfólkinu sem tók á móti fólki með hlýju og glaðlegu viðmóti. Myndirnar tala sínu máli.



