Fréttir

true

Kári og KFA skildu jöfn í fjörugum leik

Kári og KFA gerðu 2:2 jafntefli þegar liðin mættust í Akraneshöllinni á sunnudaginn. Leikurinn var jafn og spennandi þar sem heimamenn komust tvívegis yfir en gestirnir svöruðu í bæði skiptin. Matthías Daði Gunnarsson kom Kára yfir á 35. mínútu og staðan var 1:0 í hálfleik. KFA jafnaði síðar metin með marki Patreks Arons Grétarssonar á…Lesa meira

true

Einar Margeir með tvenn verðlaun

Einar Margeir Ágústsson stóð sig afar vel á Opna meistaramótinu í Lúxemborg sem fram fór dagana 10.–12. júlí. Hann vann til silfurverðlauna í 100 metra bringusundi og hafnaði í þriðja sæti í 50 metra bringusundi. Einar var einnig með besta tímann í undanrásum 200 metra bringusunds. Vegna þéttrar dagskrár á mótinu var hins vegar ákveðið…Lesa meira

true

Söguganga um Berserkjahraun með Ferðafélagi Snæfellsness

Ferðafélag Snæfellsness býður til fyrstu göngu sumarsins í kvöld, þriðjudagskvöldið 14. júlí, þegar efnt verður til sögugöngu um Berserkjahraun undir leiðsögn Jóhannesar Eybergs, bónda á Hraunhálsi. Lagt verður af stað klukkan 18 frá ómerktu bílastæði milli Bjarnarhafnar og Hraunháls. Í göngunni mun Jóhannes segja frá ýmsum minna þekktum minjum í hrauninu sem taldar eru tengjast…Lesa meira

true

Hvassri sunnanátt spáð í dag

Í dag er búist við hvassri sunnanátt um vestan- og norðvestanvert landið. Hviður geta náð allt að 25-30 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi og í Borgarfirði. Síðdegis og í kvöld hvessir auk þess á Hellisheiði, í Hvalfirði og á Holtavörðuheiði, með hviðum um og yfir 25 m/s. „Varasamt ferðaveður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn…Lesa meira

true

Úthlutun úr Minningarsjóði Heimis Klemenzsonar

Opið er fyrir umsóknir í minningarsjóð Heimis Klemenzsonar. Að því tilefni óskar stjórn sjóðsins eftir tilnefningum eða umsóknum um ungt og efnilegt tónlistarfólk úr Borgarfirði. Gert er ráð fyrir að tónlistarfólkið sé komið í framhaldsnám eða sambærilegt nám/tónsköpun. Tilnefningar/umsóknir ásamt upplýsingum um viðkomandi tónlistarfólk sendist á netfangið jomundur@gmail.com fyrir 5. ágúst 2026. Á vegum Minningarsjóðsins…Lesa meira

true

Hvalfjarðarsveit vill funda með Vegagerðinni um samgöngubætur

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samþykkt að fela sveitarstjóra að óska eftir fundi með Vegagerðinni um ýmis brýn samgöngumál í sveitarfélaginu. Þar er meðal annars lögð áhersla á aukið umferðaröryggi á fjölförnum gatnamótum, samráð um fyrirhuguð Hvalfjarðargöng II og úrbætur á tengivegum í dreifbýli. Í minnisblaði sem Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri lagði fram á  fundi sveitarstjórnar í síðustu…Lesa meira

true

Óska eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og vel hirtar lóðir og jarðir í sveitarfélaginu. Markmiðið er að hvetja íbúa og fyrirtæki til að leggja sitt af mörkum til að fegra umhverfið og efla samkennd í samfélaginu. Nú er opið fyrir tilnefningar í eftirfarandi fimm flokka, sem eru: Snyrtilegt bændabýli, falleg lóð við…Lesa meira

true

Mikil aðsókn í nýju sundlaugina

Metaðsókn var í Íþróttamiðstöð Dalabyggðar helgina 3.–5. júlí sl. en aldrei hafa fleiri gestir sótt miðstöðina á einni helgi. Vel á fimmta hundrað manns lögðu leið sína í sundlaugina þessa þrjá daga. Bæjarhátíðin Heim í Búðardal fór fram sömu helgi og nýttu fjölmargir hátíðargestir tækifærið til að sækja sundlaugina og aðra aðstöðu íþróttamiðstöðvarinnar milli viðburða.…Lesa meira

true

Enn missa Skagamenn niður gott forskot

ÍA tapaði 3:2 fyrir KA í dramatískum leik í Bestu deild karla á Akureyri í gærkvöldi. Skagamenn komust tveimur mörkum yfir en heimamenn sneru leiknum sér í vil á síðasta hálftímanum og tryggðu sér sigur með síðustu spyrnu leiksins. Skagamenn byrjuðu vel og náðu tveggja marka forystu. Gísli Eyjólfsson og Rúnar Már Sigurjónsson voru þar…Lesa meira

true

Hvetja til áframhaldandi hreinsunarátaks

Sveitarfélagið Stykkishólmur heldur áfram átaki sínu til að bæta umgengni á atvinnusvæðum og hefur nú komið fyrir gámi á Skipavíkursvæðinu þar sem eigendum lausamuna gefst kostur á að losa sig við járn og aðra málma. Átakið er framhald af hreinsunarverkefni sem ráðist var í á Reitarvegi fyrr á árinu og miðar að því að fegra…Lesa meira