
Úthlutun úr Minningarsjóði Heimis Klemenzsonar
Opið er fyrir umsóknir í minningarsjóð Heimis Klemenzsonar. Að því tilefni óskar stjórn sjóðsins eftir tilnefningum eða umsóknum um ungt og efnilegt tónlistarfólk úr Borgarfirði. Gert er ráð fyrir að tónlistarfólkið sé komið í framhaldsnám eða sambærilegt nám/tónsköpun. Tilnefningar/umsóknir ásamt upplýsingum um viðkomandi tónlistarfólk sendist á netfangið jomundur@gmail.com fyrir 5. ágúst 2026.
Á vegum Minningarsjóðsins verður boðið upp á Tónaveislu í Borgarnesi nú í ágúst. Þekktir og minna þekktir tónlistarmenn og söngvarar koma fram. Þar á meðal eru snillingarnir Jón Ólafsson og Hildur Vala, Snorri Helgason og Saga Garðarsdóttir, Magni Ásgeirsson, listamenn úr héraði og víðar og ekki síst barnakór úr Borgarbyggð. Miðar fást á midix.is
Minningarsjóður Heimis Klemenzsonar var stofnaður 2018 og hefur síðan þá staðið að mörgum viðburðum í Borgarfirði. Sex efnilegir tónlistamenn og söngvarar hafa hlotið styrk úr sjóðnum til þessa. Hlutverk sjóðsins er að standa við bakið á ungu og efnilegu tónlistarfólki í Borgarfirði og heiðra þannig minningu Heimis Klemenzsonar.
Þeim sem vilja styrkja sjóðin er bent á söfnunarreikninginn: 326-22-1916 Kt: 500119-0980.
-fréttatilkynning